Innlent

Bensínverð hækkar í kjölfar hækkunar á olíuverði

Verð á olíutunnu lækkaði örlítið í morgun eftir að hafa farið yfir 88 bandaríkjadollara vestanhafs í gær. Tunnan hefur hækkað um tæpa átta dollara á nokkrum dögum og byrjaði sú hækkun að skila sér í bensínhækkun hér á landi í morgun.

88 dollarar er hæsta verð til þessa eftir að viðskipti með framvirka samninga hófust árið 1983. Þetta er þó ekki orðið jafnhátt verð og það fór hæst í olíukreppunni á sínum tíma miðað við raunvirði dollarans þá og nú.

N1 reið á vaðið með bensínhækkun hér á landi í morgun og hækkaði bensínlítrann um eina krónu og dísellítrinn um rúma krónu. Fljótt á litið virðist hækkun á heimsmarkaði hafa gefið tilefni til meiri hækkunar, að álagningarhlutfalli óbreyttu, en styrking krónunnar vegur þarna á móti og slær á hækkunina.

Ótryggt ástand á landamærum Tryklands og Íraks, birgðastaða í Bandaríkjunum, spákaupmennska og lágt gengi dollars leggjast á eitt við að skrúfa upp verðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×