Innlent

Tölur um skattbyrði bárust ekki OECD í tæka tíð

Engar tölur um heildarskattbyrði á Íslandi í samanburði við önnur lönd eru birtar í nýjustu skattaskýrslu OECD. Ástæðan er sú að tölurnar bárust ekki til OECD frá fjármálaráðuneytinu íslenska í tæka tíð.

Hin árlega skattaskýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, var birt í dag en í henni er borin saman skattbyrði milli iðnríkja heims og breytingar milli ára. Tölurnar fyrir Ísland undanfarin ár hafa sýnt meiri hækkun skattbyrði hérlendis en í öðrum ríkjum.

Í ár sjást hins vegar engar tölur fyrir Ísland. Undir dálki Íslands eru aðeins bókstafirnir n og a, skammstöfun fyrir "not available" eða ekki tiltækar.

OECD fær uppýsingar um Ísland frá fjármálaráðuneytinu hérlendis. Í ár tókst ráðuneytinu hins vegar ekki að koma íslensku tölunum í tæka tíð til OECD, að sögn Þorsteins Þorgeirssonar, skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis. Skýringin, að hans sögn, er sú að ráðuneytið þurfti að bíða eftir upplýsingum frá annarri stofnun.

Einnig hafi sumarleyfi starfsmanna og þröngur tímarammi spilað inn í og segir Þorsteinn það miður að ekki hafi tekist að skila tölunum í tæka tíð. Hann tekur hins vegar fram að tölurnar fyrir Ísland séu núna tilbúnar og hafi birst í fylgigögnum Þjóðhagsspár sem fylgdi fjárlagafrumvarpinu í byrjun þessa mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×