Innlent

Frjósemi í fjósinu í Húsdýragarðinum

Ulirk hinn rauði hefur þegar lært að brosa í myndatökum.
Ulirk hinn rauði hefur þegar lært að brosa í myndatökum.

Ný íbúi í Húsdýragarðinum leit dagsins ljós í gær þegar kýrin Blökk bar myndarlegum nautkálfi. Hann reyndist 44 kíló við burð og braggast vel að sögn stjórnenda Húsdýragarðsins.

Kálfurinn hefur fengið nafnið Ulrik og unir hann hag sínum vel í fjósinu ásamt móðursinni Blökk, kúnum Skræpu og Bröndu, kvígunni Stjörnu og nautkálfunum Muggi og Blakki.

Þá eru einnig í fjósinu gylturnar Freyja og Frigg og gölturinn Gullinbursti og litlu grísirnir þeirra Friggjar og Gullinbursta sem komu í heiminn þann 29. september. Þá er kýrin Skræpa að nálgast burð og má því segja að það sé mikil frjósemi í fjósinu nú á haustmánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×