Innlent

Mannekla rædd í fyrramálið

MYND/Pjetur

Dagur B. Eggertsson, nýr borgarstjóri, lýsti því yfir á borgarstjórnarfundi í dag að ekki yrðu gerar meiri háttar stjórnkerfisbreytingar á þessu kjörtímabili.

Þá ítrekaði hann að nýr meirihluti í borgarstjórn væri félagshyggjumeirihluti sem legði áherslu á það sem sneri að öldruðum, börnum og fjölskyldunum í borginni.

Dagur sagði enn fremur að fyrsti fundur nýs meirihluta yrði í fyrramálið með embættismönnum borgarinnar þar sem farið yrði yfir manneklumál í borginni. Hann vildi því ekki gefa neitt upp um aðgerðir fyrr en búið væri að ræða við sviðsstjóra og mannauðsstjóra hjá borginni en jafnvel væri hægt að samþykkja einhverjar aðgerðir á fundi borgarráðs á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×