Innlent

Dæmt í morðmáli Gísla Þorkelssonar

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Gísli Þorkelsson.
Gísli Þorkelsson.

Búist er við að dómur falli í Jóhannesarborg í vikunni í morðmáli Gísla Þorkelssonar sem myrtur var í Suður-Afríku sumarið 2005. Fjórir vinir Gísla eru ákærðir fyrir aðild að morðinu, en einn þeirra, Willie Theron, játaði við yfirheyrslur að vera valdur að dauða hans.

Líkið fannst steypt í tunnu í Boksburg í Transvaal héraði í norðausturhluta landsins sex vikum eftir að Gísli var myrtur. Krufning leiddi í ljós að hann hefði verið skotinn í höfuðið af stuttu færi. Gísli stundaði viðskipti í Suður-Afríku og hafði búið þar í rúman áratug.

Gísli var myrtur þegar hann var á leið frá alþjóðaflugvellinum í Jóhannesarborg, en hann hafði verið í fríi í Bandaríkjunum.

Á fréttavefnum Citizen í Suður-Afríku segir að Willie Theron hafi neitað að koma með vinkonu Gísla, Deisree Oberholtzer, á flugvöllinn til að sækja hann. Auk Willie eru André Koekemoer, Hendrik Breedt og Linda Theron ákærð í málinu.

Lokamálflutningur átti að hefjast í gær en var frestað þar sem lögmaður eins fjórmenninganna lenti í bílslysi um helgina og komst ekki til Jóhannesarborgar á tilsettum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×