Innlent

Áfram í pólitík

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, ætlar ekki að draga sig út úr stjórnmálum á kjörtímabilinu. Vilhjálmur lætur af starfi borgarstjóra í dag og segist hann hafa óskorað traust sinna félaga til að starfa áfram.

Starfsfólk Ráðhússins kvaddi í morgun Vilhjálm með blómum. Vilhjálmur sagði við það tilefni að hann liti stoltur yfir farinn veg en það væri skrýtin tilfinning að vera að hætta.

Þrátt fyrir atgang síðustu daga segir Vilhjálmur að hann ætli ekki að draga sig út úr pólitík. Hann ætli sér að starfa sem borgarfulltrúi út kjörtímabilið. Hann hafi reynt að gera sitt besta og hafi flutt og óskorað traust sinna félaga til að sinna áfram sínu starfi.

Vilhjálmur telur að hann hefði getað gefið sér meiri tíma til að taka ákvarðanir sem snéru að REI og hægt hefði verið að gera hlutina með öðrum hætti. Það sé hins vegar alltaf gott að vera vitur eftir á. Mikið hafi mætt á honum í starfi sínu og því hafi hann þurft að reiða sig á þær upplýsingar sem hann fékk í hendurnar og treysta því að þær væru vel unnar. Hann hafi hreinlega ekki haft tíma til að lesa hvert einasta skjal.

Vilhjálmur átti ánægjulega stund með starfsfólkinu í morgun og fékk ýmsar gjafir. Þannig færðu slökkviliðsmenn honum slökkvitæki en flestir muna eftir framgöngu Vilhjálms þegar hann stóð vaktina í miðbæjarbrunanum í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×