Innlent

Lýsa yfir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur

Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum lýsir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur og öll vinnubrögð hennar, þar sem hún gekk úr flokknum en situr samt í umboði hans í borgarstjórn.

Sambandið bendir á að Margréti hafi ekki verið kosin persónukjöri, heldur hafi það verið atkvæði flokksins, sem veittu henni setu sem varamanni í nafni Fjálslyndaflokksins. Minnt er á að Margrét Sverrisdóttir hafi talið það bæði ósiðlegt og ólöglegt þegar Gunnar Örlygsson gekk úr Frjálslynda flokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn á sínum tíma. Skorar sambandið því á hana að segja af sér þannig að raunverulegur fulltrúi Frjálslynda flokksins setjist í borgarstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×