Innlent

Ógilti flutning í starfi innan Landspítalans

MYND/E.Ól

Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í dag þá ákvörðun forsvarsmanna Landspítalans að flytja hjúkrunarfræðing til í starfi, af geðdeild Landspítalans við Hringbraut yfir á geðdeildina á Kleppi.

Héraðsdómur hafði fyrr á árinu dæmt hjúkrunarfræðingnum hálfa milljón króna í bætur vegna flutningsins en vísað frá þeirri kröfu hans að tilfærslan yrði dæmd ógild. Hjúkrunarfræðingurinn leitaði því til Hæstaréttar sem felldi frávísunina úr gildi og lagði fyrir héraðsdóm að taka málið aftur upp.

Í dómnum sem féll í dag kemur fram að héraðsdómari líti svo á að krafa hjúkrunarfræðingsins um ógildingu feli ekki í sér að að hún krefjist þess að verða flutt aftur til baka á geðdeild Landspítalans við Hringbraut heldur geti hún átt aðra hagsmuni af því að fá slíkan dóm.

Vísað var til dóms Héraðsdóms í málinu í vor þar sem fram hefði komið að málefnalegar ástæður hefðu ekki verið færðar fram þegar ákvörðun var tekin um að flytja konuna til í starfi og að ákvörðunin hefði verið meira íþyngjandi fyrir hana en efni stóðu til.

Ákvörðunin hefði falið í sér brot gegn æru og persónu konunnar, en hún var færð til vegna ásaka samstarfsmanns um kynferðislega áreitni. Segir dómurinn í dag að þegar tekið sé tillit til þessa alls verði fallist á að ógilda þá ákvörðun að flytja konuna til í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×