Innlent

Vilja miðla fæðingarorlofsreynslu Norðurlandabúa

Reynslan norrænu ríkjannasýnir að feður taka frekar barneignaorlof ef gert er ráð fyrir ákveðnu tímabili sem fyrnist ef það er ekki nýtt. Þetta kom fram í máli Stefans Wahlin, jafnréttisráðherra Finna, á fundi norrænu janfréttisráðherranna í Finnlandi.

Fram kemur í frétt frá Norðurlandaráði að Wahlin vilji einnig kanna hvernig norrænu ríkin getið miðlað þessari reynslu til annarra þjóða. Bent er á að hlutfall kvenna á vinnumarkaði sé hærra á Norðurlöndum en annars staðar í Evrópu og þá eru þær langtum betur menntaðar. Enn er þó margt sem þarf að laga að mati Wahlins og norrænu ríkin séu mislangt komin í jafnréttismálum.

Fram kemur í fréttinni að finnska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytið hafi ásamt samtökum vinnumarkaðarins hafið herferð fyrir því að feður taki lengt fæðingarorlof. Slagorð herferðarinnar er: Þú hefur eignast barn. Nú er komið að barninu að eignast þig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×