Innlent

Búa sig undir annríki vegna útboðs á lóðum

Svæðið sem um ræðir er í Fossvogi.
Svæðið sem um ræðir er í Fossvogi.

Framkvæmdasvið býr sig nú undir mikið annríki á föstudaginn kemur en þá rennur út tilboðsfrestur í lóðir sunnan Sléttuvegar í Fossvogi.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá borginni er um að ræða eina fjölbýlishúsalóð, 13 lóðir fyrir keðjuhús eða raðhús og átta lóðir fyrir samtengd tvíbýlishús. Verða lóðirnar seldar hæstbjóðanda.

Haft er eftir Ágústi Jónssyni, skrifstofustjóra framkvæmdasviðs, að í ljós reynslunnar megi búast við að bjóðendur komi á síðustu stundu og þar sem ganga þarf frá tilboðstryggingu að upphæð 300 þúsund krónur er afgreiðsla seinlegri en ella. Síðast þegar lóðir hafi verið boðnar út hafi húsinu verið lokað kl. 16.15 en það tók síðan tvær klukkustundir að afgreiða alla bjóðendur.

Ágúst hvetur fólk til að vera fyrr á ferðinni til að forðast biðraðir. Kauptilboðin verða svo opnuð í beinu framhaldi af því að tilboðsfrestur rennur út í lok dags á föstudag. Öllum bjóðendum er heimilt að vera viðstaddir opnun tilboða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×