Innlent

Björgunarsveitarmenn á eigin bílum í útköllum

Starfsemi björgunnarsveita landsins byggir að mestu á sjálfboðavinnu meðlima sveitanna eins og kunnugt er. Hluti þeirra mun þar að auki leggja fram eigin bíla í þágu starfseminnar. Er þetta einkum hjá minni björgunarsveitum úti á landi þar sem bíla- og tækjakostur er ekki eins öflugur og hjá stærri sveitunum.

Ólöf Snæhól Baldursdóttir segir að alltaf sé eitthvað um að meðlimir einstakra björgunarsveita leggi fram eigin bíla í útköll og leitir. "Við reynum að stemma stigu við þessum einkum þar sem við viljum að tryggingar okkar fólks séu í fullkomnu lagi," segir Ólöf Snæhólm. "Og stærri sveitirnar eiga að vera það velbúnar tækjum og bílum að óþarf er fyrir einstaka meðlimi að leggja slíkt til sjálfir."

Ólöf segir að þó sé alltaf eitthvað um meðal minni sveitanna að meðlimir leggi til eigin farartæki. Á mótí fái þeir þá olíu- og viðhaldskostnað bættan af viðkomandi björgunarsveit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×