Velti jepplingi sínum á Hellisheiði 15. október 2007 11:45 MYND/Stöð 2
Töluvert hefur verið um umferðarslys og árekstra á Suðurlandsvegi í morgun. Rétt fyrir klukkan átta í morgun missti erlendur ferðamaður stjórn á jepplingi sínum uppi á Hellisheiði og fór hann margar veltur utan vegar. Einn farþegi var í bílnum og telur lögreglan á Selfossi mikla mildi að bæði ökumaður og farþegi hafi sloppið með minni háttar meiðsl en þeir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild í Fossvogi. Bíllinn er hins vegar gjörónýtur. Fyrr um morguninn, eða upp úr klukkan hálfátta, varð önnur velta en í þetta sinn í Draugahlíðabrekku skammt frá Litlu-Kaffistofunni. Ökumaður og farþegi úr bílnum voru flutt á slysadeild í Fossvogi en voru ekki talin mikið slasaðir. Bifreiðin var hins vegar ónýt. Í beinu framhaldi af því slysi rákust fjórir bílar saman en þar slasaðist enginn en ökutækin eru öll mikið skemmd og óökufær. Á þeim stað sem síðarnefndu óhöppin urðu skiptist vegurinn í tvær akreinar til austurs og eina í vestur með girðingu á milli. Óhöppin urðu á veginum þar sem ekið er í vestur og segir lögregla að þar sé nær engin vegöxl. Þess vegna hafi vegurinn lokast um tíma og nokkrar umferðartafir orðið. Lögregla á Selfossi segir í tilkynningu að mikla hálku hafi gert skyndilega á Suðurlandsvegi í morgun og að rekja megi slysin til þess.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira