Innlent

Hálfs árs fangelsi fyrir að aka ítrekað án ökuleyfis

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað ekið bíl án ökuleyfis og fyrir að stela bíl og aka honum undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Alls greip lögregla manninn undir stýri átta sinnum á tímabilinu 13. apríl til 31. júlí, þar af fjórum sinnum á tímabilinu 15. til 31. júlí. Í tveimur tilvikanna var maðurinn undir áhrifum fíkniefna og í öðru þeirra hafði hann stolið bíl móður sinnar í Garðinum en ekið honum á ljósastaur í Sandgerði.

Maðurinn játaði á sig brotin en fram kemur í dómnum að honum hafi frá árinu 2000 sex sinnum verið gert að greiða sektir fyrir brot á umferðarlögum og þá hafi hann fjórum sinnum verið sviptur ökurétti. Þá hefur maðurinn verið dæmdur fimm sinnum til fangelsisrefsingar, meðal annars fyrir umferðarlagabrot. Með brotum sínum nú rauf hann skilorð og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Auk hálfs árs fangelsis var maðurinn sviptur ökurétti ævilangt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×