Innlent

Síðasta verk Vilhjálms var eitt fyrsta umdeilda verkið

Borgarstjóri tekur skóflustungu að nýrri byggingu Háskólans í Reykjavík í Öskjuhlíð.
Borgarstjóri tekur skóflustungu að nýrri byggingu Háskólans í Reykjavík í Öskjuhlíð. MYND/Anton Brink

Eitt síðasta embættisverk Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra var að taka skóflustungu að einu fyrsta umdeilda verkinu sem hann kom að í embætti. Hann var harðlega gagnrýndur fyrir að víkja ekki sæti í málinu og sakaður um tortryggileg vinnubrögð þegar borgin skrifaði undir viljayfirlýsingu við hjúkrunarfélagið Eir um byggingu íbúða og miðstöðvar fyrir aldraða. Vilhjálmur er stjórnarformaður Eirar.

Vilhjálmur tók fyrstu skóflustungu að íbúðunum 111 um helgina.

Í auglýsingu sem borgin sendi frá sér í aðdraganda málsins var óskað eftir samstarfsaðilum við byggingu þjónustuíbúða og miðstöðvar fyrir aldraða. 15 sóttu um og fól borgarráð Hrafnistu og hjúkrunarheimilinu Eir verkið. Fulltrúar minnihluta mótmæltu og töldu að verkið hefði átt að bjóða út formlega.

Í innkaupareglum Reykjavíkurborgar kveður á um útboðsskyldu varðandi rekstur, þjónustu og verklegar framkvæmdir. Ekki var talað um eignarhald eða rekstur þjónustu í auglýsingunni og taldi Samfylkingin að það stangaðist á við lög og reglur borgarinnar.

Borgarstjóri var gagnrýndur fyrir að víkja ekki sæti strax í upphafi málsins. Það gerði hann hins vegar eftir að minnihlutinn gerði athugasemd við málið.

Björn Ingi Hrafnsson formaður Borgarráðs viðurkenndi í nóvember á síðasta ári að mistök hefðu átt sér stað varðandi orðalag í viljayfirlýsingunni.

Vilhjálmur sat áfram sem stjórnarformaður hjúkrunarheimilisins Eir og gegnir þeirri stöðu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×