Innlent

Viðræðurnar ganga vel í góðum anda

MYND/valgarður

Nýji meirihlutinn í Reykjavík fundaði stíft í dag en ákveðið var að að taka frí í kvöld og gefa fólki tækifæri til að sinna fjölskyldum sínum eftir langa törn. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri í samtali við Vísi.

Borgarfulltrúar nýja meirihlutans vinna nú hörðum höndum að því að koma sér saman um hvernig hafa eigi málum það sem eftir lifir kjörtímabili. Dagur segir málin ganga vel í góðum anda en ekki er tímabært að tjá sig frekar á þessu stigi málsins. Þráðurinn verður tekinn aftur upp í fyrramálið.

Að sögn Dags munu málin skýrast betur á borgarstjórnarfundinum á þriðjudaginn þar sem nýji meirihlutinn mun formlega taka við völdum í ráðhúsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×