Innlent

Lýsa eindregnum stuðningi við álver við Bakka

MYND/GVA

Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í Norðausturkjördæmi lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um byggingu álvers við Bakka við Húsavík. „Sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið á byggðaþróun á Austurlandi við byggingu Fjarðaáls gefur skýr fyrirheit um þau jákvæðu áhrif sem framkvæmd á Bakka mun hafa," segir í ályktun sem samþykkt var einróma á kjördæmisþingi Sjálfstæðisfélagana í Norðausturkjördæmi.

„Kjördæmisráðið telur að slík framkvæmd sé nauðsynleg til að styðja atvinnulíf á Norðausturlandi til framtíðar," segir einnig í ályktuninni.

Sérstakir gestir aðalfundarins voru þau Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×