Innlent

Vinstri grænir fagna vasklegri framgöngu Svandísar

Vinstri-grænir eru ánægðir með sína konu. Mynd úr safni.
Vinstri-grænir eru ánægðir með sína konu. Mynd úr safni.
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík fagnar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg.

„Fundurinn lýsir sérstakri ánægju með vasklega framgöngu Svandísar Svavarsdóttur, oddvita VG, sem hefur staðið vörð um hagsmuni borgarbúa trú stefnu Vinstri grænna um umhverfisvernd, auðlindastefnu og jafnrétti.

Félagsfundurinn lýsir fullum stuðningi við störf borgarstjórnarflokks VG við myndun hins nýja meirihluta og óskar Reykjavíkingum til hamingju með nýja félagshyggjustjórn," segir í tilkynningu frá VG.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×