Innlent

Björn Ingi fjarri góðu gamni á fyrsta fundi nýja meirihlutans

MYND/Stöð 2

Fulltrúar hins nýja meirihluta í borginni funda nú á skrifstofu borgarfulltrúa við Tjarnargötu í miðbæ Reykjavíkur. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna, er hins vegar fjarri góðu gamni og liggur veikur heima hjá sér.

Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, situr fundinn fyrir hönd Björns Inga. Hann segir vinnuna ganga mjög vel og að góður andi ríki meðal fundarmanna. „Við erum að vinna að málefnasamningi og það gengur vel."

Fundurinn hófst klukkan tvö í dag en ekki liggur fyrir hvenær honum mun ljúka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×