Innlent

Dópsali dæmdur fyrir vopnalagabrot

Andri Ólafsson skrifar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, eftir að rúm tvö hundruð grömm af maríjúana og rúm tvö kíló af hassi fundust á heimili hans í Mosfellsbæ.

Þar að auki fundust rúm 300 grömm af amfetamíni í húsnæði á vegum mannsins í Hafnarfirði.

Maðurinn játaði að vera eigandi efnanna og að þau væru að hluta ætluð til söludreifingar.

Hann var auk þess dæmdur fyrir vopnalagabrot þar sem á heimili mannsins fannst rifill sem hann hafði ekki leyfi fyrir.

Maðurinn var því dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×