Vandaverk að skipta verkum í nefndum og ráðum Gissur Sigurðsson skrifar 12. október 2007 13:00
Þegar eru skiptar skoðanir meðal stuðningsmanna nýju borgarstjórnarflokkanna, um hvort kjörfylgi eigi að ráða niðurröðun í nefndir og ráð borgarinnar, eða eitthvað annað. Ungliðar í Vinstri - grænum vilja að Björn Ingi Hrafnsson og Dagur B. Eggertsson geri hreint fyrir sínum dyrum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mun að líkindum láta af embættinu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. Á þeim fundi verður líka kosið í ráð og nefndir og stefna nýs meirihluta væntanlega skýrast. Þótt Vilhjálmur verði borgarstjóri í nokkra daga enn má hann ekki brydda upp á neinu nýju eða stofna til skuldbindinga utan þess sem þegar hefur verið ákveðið samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Við nýja meirihlutanum blasir nokkur vandi þegar kemur til skipta í nefndir og embætti því fylgi nýju borgarstjórnarflokkannna var ærið mismunandi í síðustu borgarstjórnarkosningum. Samfylkingin fékk rösk 27 prósent, Vinstri græn hátt í 14 prósent, eða nærri helmingi minna en Samfylkingin, Frjálslyndi flokkurinn fékk rösk tíu prósent og Framsóknarflokkur Björns Inga Hranfssonar aðeins rúm sex prósent, eða fjórum sinnum minna fylgi en Samfylkingin. Það verður því vandaverk að raða niður svo öllum líki. Og það er að fleiru að huga því ungliðar úr Vinstri - grænum segja að það sé forsenda samstarfs um nýjan meirihluta, að Björn Ingi Hrafnsson geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum, eins og þeir orða það, og að Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri útskýri hvers vegna hann studdi kaupréttarsamninga til valdra manna hjá REI. Þeir segja einnig að Svandís Svavarsdóttir hafi með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún sé og verði hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Sjá meira