Mills og McCarntey komust ekki að samkomulagi 12. október 2007 10:39 Viðræðurnar sigldu í strand MYND/Getty
Hjónin fyrrverandi þau Paul McCartney og Heather Mills náðu ekki samkomulagi á fundi með dómara í London í gær en þau hittust til að freista þess að gera með sér skilnaðarsáttmála. Af þeim sökum hefjast réttarhöld í málinu í febrúar á næsta ári með öllu því fjölmiðlafári fylgir. McCartney bauð Mills 50 milljónir punda eða sex milljarða íslenskra króna sem þykir rífleg upphæð í ljósi þess að þau voru einungis gift í fjögur ár. Bítlinum ætti þó ekki að muna um milljarðana en auðævi hans eru metin á 825 milljónir punda eða 100 milljarða íslenskra króna. Þau Mills og McCartney ræddu, með aðstoð lögfræðinga, saman í rúmar átta klukkustundir en Bítillinn setti það sem skilyrði fyrir upphæðinni að Mills myndi ekki láta hafa eftir sér eitt orð um hjónaband þeirra. Mills vildi ekki ganga að því og var jafnvel tilbúin til að sættast á lægri upphæð til að mega tjá sig að vild. Því fór sem fór og viðræðurnar sigldu í strand. Menn velta því nú fyrir sér hvað Mills gengur til og hvort hún hafi ávallt verið á höttunum eftir peningum McCartneys eða hvort hún sé einfaldlega athyglissjúk. Hún hefur sakað McCartney um heimilisofbeldi og telja sumir að hún ætli að skrifa bók.
Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira