Innlent

Mikil viðurkenning fyrir náttúruvernd

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. MYND/VG

Ákvörðun verðlaunanefndar norska Stórþingsins um að veita Al Gore friðarverðlaun Nóbels staðfestir að loftlagsbreytingar eru eitt stærsta mál samtímans að mati formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segir um nýja tegund friðarhugsunar að ræða.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir Al Gore og náttúruvernd," sagði Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, í samtali við Vísi. „Loftlagsbreytingarnar eru eitt stærsta mál samtímans og þessi verðlaun staðfesta það. Þetta er ný tegund friðarhugsunar. Ef vistkerfi jarðar er í ólagi veldur það hörmungum fyrir milljónir manna."

Norska verðlaunanefndin greindi frá því í morgun að Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og alþjóðleg nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftlagsmál fái friðarverðlaun Nóbels í ár.

Árni telur líklegt að ákvörðun nefndarinnar hafi jákvæð áhrif á fund umhverfisráðherra ríkja heims sem haldinn verður á Balí í lok árs. Þar munu ráðherrar ræða saman um nýjan loftlagssamning sem taka á gildi árið 2012. Þá telur Árni að þetta hafi einnig áhrif á bandarísku forsetakosningarnar. „Þetta styrkir stöðu þeirra frambjóðenda sem vilja taka á þessum málum í Bandaríkjunum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×