Innlent

UVG: Björn Ingi geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum

MYND/Vilhelm

Ung vinstri - græn bæði á landsvísu og í Reykjavík segja eina af forsendum nýs samstarfs um nýjan meirihluta í borgarstjórn að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum og það sem allra fyrst.

Þá þurfi Dagur B. Eggertsson að útskýra hvers vegna hann studdi það að völdum starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur yrði boðnir kaupréttarsamningar í Reykjavik Energy Invest. Telja ung vinstri - græn að að Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borginni, hafi með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún sé og verði hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur.

Í ályktun frá stjórn ungra - vinstri grænna er nýjum meirihluta fagnað og sagt að þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið við völd nema í eitt og hálft ár hafi verið löngu tímabært að koma hinum spilltu peningaöflum frá völdum í borgarstjórn Reykjavíkur. Loksins hafi Reykvíkingar fengið borgarstjórnarmeirihluta sem hafi meirihluta kjósenda á bak við sig, eins og vera ber.

„Ung vinstri-græn sjá ekkert athugavert við það að lýðræðislega kjörnir fulltrúar fjögurra flokka myndi með sér meirihluta og draga í efa að nokkurn tíma muni ríkja jafn mikill glundroði meðal nýs meirihluta og meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að undanförnu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×