Skipting embætta liggur fyrir 11. október 2007 15:39 MYND/Pjetur
Boðað verður til blaðamannafundar klukkan 16:30 á Ráðhússtéttinni við Iðnó til þess að tilkynna um meirihlutasamstarf gömlu R-listaflokkanna, Framsóknarflokksins, Vinstri - grænna og Samfylkingarinnar ásamt Frjálsynda flokknum í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta er gert í kjölfar þess að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sleit meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn vegna ágreinings um málefni Reykjavik Engergy Invest. Samkvæmt heimildum Vísis verður Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna, verður pólitískur staðgengill borgarstjóra og formaður sameinaðs borgarstjórnarflokks, Margrét Sverrisdóttir úr frjálslyndum og óháðum verður forseti borgarstjórnar og Björn Ingi Hrafnsson verður formaður borgarráðs eins og áður. Þá hafa flokkarnir gert með sér samkomulag um að stofna hóp til að yfirfara mál Orkuveitu Reykjavíkur en rekja má deilur innan fráfarandi meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna til ákvarðana tengdum fyrirtækinu og Reykjavik Energy Invest. Svandís Svavarsdóttir fer fyrir þessum hópi. Þá mun vera samkomulag um að Samfylkingin fari með stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur. Hlutirnir hafa gerst hratt frá því að í ljós kom á aukafundi borgarstjórnar í gær að Björn Inga Hrafnsson og borgarfulltrúa sjálfstæðismanna greindi á um hverngi standa skyldi að sölu á rúmlega þriðjungshlut Orkuveitu Reykjavíkur í Reykjavik Energy Invest sem sameinaðist Geysi Green Energy í síðustu viku. Eftir því sem Vísir kemst næst hafa viðræður milli flokkanna sem standa að nýjum meirihluta staðið frá því í morgun. Til stóð að meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna hittist á fundi í Höfða klukkan eitt til að ræða meðal annars fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár og málefni REI. Björn Ingi mætti hins vegar ekki og laust fyrir klukkan tvö fór Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri úr Höfða á fund Björns Inga. Þar greindi Björn Ingi Vilhjálmi frá því að hann hygðist slíta meirihlutasamstarfinu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira