Innlent

Segir sjálfstæðismenn vilja fórna meirihlutanum í borgarstjórn

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks standa fyrir ofsóknum á hendur Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra. Þetta kemur fram á heimasíðu Össurar. Hann segir sjálfstæðismenn einbeitta í þeim ásetning að fórna meirihlutanum frekar en að gefa borgarstjóra grið.

Össur segir að sér ofbjóði framkoma sjálfstæðismanna í garð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Þá segir hann allt benda til þess að sjálfstæðismönnum takist að brjóta upp núverandi meirihlutasamstarf í borgarstjórn:

„Eitt er að verða á mistök - annað að vera festur á gálga og húðstrýktur dag eftir dag. Ég er ekki pólitískur sálufélagi borgarstjóra en mér satt að segja ofbýður hvernig hann er leikinn. Félagar hans í borgarstjórnarflokknum virðast einbeittir í þeim ásetningi að fórna frekar meirihlutanum en gefa borgarstjóra grið. Mér sýnist allt benda til að þeim verði að ósk sinni."

Sjá nánar á heimasíðu Össurar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×