Innlent

Mál Svandísar fyrir dóm á mánudag

MYND/Heiða

Mál Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri - grænna, vegna eigendafundar í Orkuveitu Reykjavíkur í síðustu viku verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag.

Eins og kunnugt er var samþykkt á fundinum að heimila samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy en Svandís telur fundinn ólöglegan þar sem ekki hafi verið boðað til hans með lögbundnum hætti. Svandís greindi frá því í gær að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði samþykkt beiðni lögmanns hennar, Ragnars Hall, að veita flýtimeðferð í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×