Innlent

Frumættleiðingum frá útlöndum fækkar

Sjötíu börn voru ættleidd hér á landi í fyrra og fækkaði þeim um fimm frá árinu á undan. Fram kemur í tölum Hagstofunnar að 37 barnanna hafi verið stjúpættleidd en í 33 tilvikum var um frumættleiðingu að ræða.

Stjúpættleiðingum, það er ættleiðingum á börnum maka, fjölgaði um tíu milli áranna 2005 og 2006 og í flestum tilvikum var kjörforeldri stjúpfaðir, eða í 32 tilvikum, stjúpmóðir í tveimur tilvikum og þrír einstaklingar í staðfestri samvist ættleiddu barn maka síns.

Af 33 frumættleiddum börnum í fyrra voru 14 ættleidd frá útlöndum. Það er allnokkur fækkun frá fyrri árum en til samanburðar var 41 barn frumættleitt frá útlöndum árið 2005. Breytinguna milli ára má að mestu rekja til fækkunar frumættleiðinga frá Kína, en árið 2006 voru þær 8 samanborið við 35 árið áður.

Þá sýna tölur Hagstofunnar að síðustu tíu árum hafi felst erlend frumættleidd börn komið frá Kína eða 89 stúlkur og einn drengur. Frumættleiðingar innanlands voru hins vegar fleiri 2006 en árin á undan eða 19 samanborið við 7 árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×