Innlent

Eldur á Broadway

Frá Broadway.
Frá Broadway. MYND/Daníel

Eldur kom upp á skemmtistaðnum Broadway við Ármúla í kvöld. Slökkviliðið var kallað á staðinn rétt eftir klukkan níu og hafði eldurinn læst sig í gardínur við neyðarútgang staðarins. Ekki var um mikinn eld að ræða og slöktu slökkviliðsmenn í síðustu glæðunum þegar þeir komu á vettvang.

Skemmtikraftar voru við æfingar á staðnum þegar eldurinn kom upp og var hann rýmdur á meðan unnið var að reykræstingu. Orsök eldsins er enn óljós en unnið er að rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×