Aðeins tveir skólar með færri skóladaga en 170 1. október 2007 10:20 MYND/Stefán
Einungis tveir grunnskólar í landinu voru með færri skóladaga en 170 á síðasta skólaári samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Fram kemur á vef hennar að báðir skólarnir séu með undanþágu vegna fámennis eða skipulags skólaaksturs. Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að ekki var marktækur munur á fjölda skóladaga eftir bekkjum en meðalfjöldi skóladaga allra bekkja var 179. Skóladagarnir skiptast í kennsludaga, prófdaga og aðra daga eins og starfsdaga og kom í ljós að kennsludagar voru frá 164 til 172 eftir bekkjum. Meðaltal prófdaga var einnig breytilegt eftir bekkjum. Fæstir voru prófdagar hjá nemendum í 1. bekk, eða 0,4 en flestir hjá 10. bekkingum, 7,4 að meðaltali. Bent er á í frétt Hagstofunnar að erfitt geti verið að bera saman einstaka skóla landsins þar sem aðstæður séu ekki þær sömu í borg og í sveit. Skólaakstur sé dýr og því hafi grunnskólar í dreifbýli reynt að haga kennslutíma með tilliti til skólaksturs. Lítið sé til dæmis um eiginlega prófdaga í dreifbýlisskólunum. Þá eru dæmi um að yngri nemendur dvelji lengur í skólanum á degi hverjum en fái í staðinn færri kennsludaga, þannig að skilyrði laga um lágmarksfjölda kennslustunda eru samt sem áður uppfyllt. Segir enn fremur á vef Hagstofunnar að flestir skólar uppfylli kröfur grunnskólalaga um lágmarksfjölda kennslustunda nemenda.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira