Innlent

Umferðarlagabrotum fjölgar

Umferðarlagabrotum fjölgaði um tuttugu prósent í ágústmánuði miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt samantekt Ríkislögreglustjóra. Hraðakstursbrotum fjölgaði mest, eða um 35 prósent og var fjölgun þeirra mest í umdæmi lögreglunnar á Snæfellsnesi.

Má að hluta rekja það til umferðarmyndavéla, sem settar voru upp í umdæminu. Þá má líkja fjölgun tilvika þar sem ökumen aka undir áhrifum fíkniefna eða lyfja, við sprengingu, en þau eru að verða 400 það sem af er árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×