Innlent

Metveiði í báðum Rangánum

Veiðin í báðum Rangánum er komin í fimm þúsund laxa í sumar, sem er algert met, og enn er mánuður eftir af veiðitímanum þar. Þótt veiðin þá daga sem eftir eru, yrði talsvert innan við meðaltal undanfarinna daga gæti veiin farið í sex þúsund laxa.

Þrátt fyrir mikla veiðii ur Rangánum er stofninn þar ekki í hættu, því veiðin byggist að mestu á seiðaræktun til hafbeitar, sem skilar svo fullorðnum laxi upp í árnar aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×