Falla frá hugmyndum um stækkun hafnar í Kársnesi Björn Gíslason skrifar 15. september 2007 13:18 MYND/Teitur
Útlit er fyrir að sættir séu í sjónmáli í deilu íbúa á Kársnesi í Kópavogi og bæjaryfirvalda eftir að Gunnar I. Birgisson tilkynnti á fundi í morgun að til stæði að falla frá stækkun hafnarinnar og hafnsækinni starfsemi á Nesinu. Formaður Samtakanna betri byggð fagnar breytingunum og segist tilbúinn til viðræðna um framhald mála. Deilt hefur verið um það síðustu mánuði hversu langt eigi að ganga í skipulagsmálum á Kársnesinu. Bæjaryfirvöld vildu bæði stækka hafnarsvæðið og auka atvinnuhúsnæði á nesinu ásamt því að fjölga íbúum. Þessu mótmæltu margir Kársnesbúar og töldu of langt seilst þar sem slík uppbygging hefði för með sér aukna mengun og umferð sem götur Kársnessins réðu ekki við. Skoða hugmyndir um léttari starfsemi Sjálfstæðismenn í Kópavogi efndu til fundar í morgun þar sem Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri fjallaði um skipulagsmál. Þar kom fram að meirihlutinn væri nú að skoða nýjar hugmyndir um Kársnesið, þar á meðal að falla frá stækkun hafnargarðsins og hætta sömuleiðis við hafnsækna starfsemi. Gunnar tók einnig nokkur dæmi af því hverju þyrfti að breyta í samgöngumálum á nesinu ef íbúum yrði fjölgað. Gunnar sagði í samtali við við Vísi að í stað hafnarstarfseminnar sjái meirihlutinn fyrir sér léttari starfsemi, eins og læknastöð og skrifstofur fyrir arkitekta og ýmislegt þess háttar. „Það er allir sammála um að það þarf að taka til á Kársnesinu. Nýju hugmyndirnar gera ráð fyrir að Kársnesið verði betra en það er. Við vilja fjölga íbúum þar og styrkja innviðina," segir Gunnar og reiknar með að rætt verði við íbúa um framhaldið. Nærri 1700 athugasemdir bárust frá einstaklingum og samtökum vegna skipulags á hafnarsvæðinu á dögunum og ljóst er af því að hugmyndirnar voru umdeildar. Gunnar segir að sér hafi fundist fullangt gengið gegn persónu hans í málinu. „Mér finnst mjög fínt að fólk láti í sér heyra, það er hluti af lýðræðinu. Við höfum hlustað á gagnrýni íbúa og finnum vonandi sameiginlega lausn á málinu.“ Komin samræðugrundvöllur milli aðila Arna Harðardóttir, formaður samtakanna Betri byggðar, fagnar breytingum á afstöðu bæjaryfirvalda. „Það er alveg ljóst að nú er kominn samræðugrundvöllur á milli íbúa og bæjarins," segir Arna. Hún segist tilbúin til viðræðna við bæinn um framhaldið. „Við viljum öll sjá breytingar á Kársnesinu en það þarf að vera sátt um þær," segir Arna. Hún bendir á að íbúafjölgun á nesinu megi ekki verða meiri en umferðarmannvirki þoli og ef menn hyggist byggja upp íbúðir þá verði að skoða ráðstafanir sem þurfi að gera í umferðarmálum vegna þess.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira