Innlent

Finna strax mun á ástandinu eftir að eftirlit var aukið

Lögreglumenn að störfum niðri í miðbæ um síðustu helgi.
Lögreglumenn að störfum niðri í miðbæ um síðustu helgi. MYND/Eyþór Árnason

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók 14 manns og kærði þá fyrir brot á lögreglusamþykkt í eftirliti sínu í miðbænum í nótt. Líkt og um síðustu helgi var lögregla með aukinn mannskap í miðbænum og segist hún strax finna mun á hegðun manna eftir að eftirlitið var aukið.

Flestir þeir sem ákærðir voru höfðu kastað af sér vatni á almannafæri en slíkt er skýrt brot á lögreglusamþykkt. Þá stöðvaði lögregla fimm manns sem grunaðir eru um ölvunarakstur og fjóra sem taldir eru hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×