Slökkviliðsbílar ná upp í hæstu hæðir Haukur Holm skrifar 14. september 2007 19:00
Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir lið sitt í stakk búið að bjarga fólki af efstu hæðum háhýsa svæðisins, þrátt fyrir að körfubílarnir nái aðeins upp á áttundu hæð. Vinnureglur varðandi eldsvoða í háhýsum eru í endurskoðun. Byggingaverktakar leggja áherslu á að ná sem mestu byggingamagni, eins og það heitir, það er að fá sem flesta fermetra út úr hverju húsi og því reynt að byggja eins hátt og mögulegt er. Sem dæmi verður hús sem eigandi Rúmfatalagersins er að byggja á Smáratorgi 20 hæðir. Körfubílar slökkviliðsins ná upp í 28 metra hæð, en það er um það bil 7.til 8.hæð, en á þessari mynd af háhýsi á Kleppsholtinu sést hversu hátt körfubíll slökkviliðsins næði og hvaða hæðir væru þar fyrir ofan. Jón Viðar segir að ef eldur kvikni hátt uppi, sé reynt að koma upp bækistöð eins hátt og hægt er, til dæmis á hæðinni fyrir neðan, enda skipti það líka máli fyrir reykkafara að þurfa ekki að ganga frá jarðhæð og upp á elleftu eða tólftu hæð. Við þessar aðstæður gætu súrefniskútar reykkafarns verið tómir þegar hann kemur á vettvang. Jón Viðar segir að fólk ofan við eldinn, geti forðað sér út á svalir. Hann segir gömul háhýsi í Reykjavík uppfylla kröfur um eldvarnir og öryggi. Hann segir að nú standi yfir endurskoðun á vinnureglum slökkviliðsins varðandi útköll í háhýsi.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira