Innlent

Karl Steinar Guðnason hættir

Karl Steinar Guðnason.
Karl Steinar Guðnason. MYND/VG

Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, lætur af störfum 1. nóvember næstkomandi vegna aldurs. Við starfi hans tekur Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Tryggingastofnunar.

Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu að upphaflega hafi Karl Steinar ætlað að láta af störfum nú á haustdögum en samkomulag hafi orðið um að starfslok hans yrðu seinkuð til 1. nóvember.

Karl Steinar hefur verið forstjóri Tryggingastofnunar í 14 ár eða frá 1. október 1993.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×