Innlent

Erlendir ferðamenn eyða þriðjungi meira en í fyrra

MYND/Teitur

Gjaldeyristekjur af ferðamönnum jukust verulega á öðrum fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra eftir því sem segir í frétt frá Ferðamálastofu. Þar er vitnað í tölur frá Seðlabankanum sem sýni að neysla ferðamanna hafi aukist um nærri þriðjung, úr ellefu milljörðum króna í rúma 14 á tímabilinu.

Fargjaldatekjur hafa hækkað minna, eða um 4,2 prósent, en Ferðamálastofa bendir á að inni í þeim tölum séu aðeins flutningstölur frá flugfélögum sem séu skráð hér á landi. Bent er á að farþegum um Leifsstöð á fyrri helmingi ársins hafi fjölgað um nærri 20 prósent frá fyrra ári.

Ferðamálastofa bendir á að þegar rýnt sé nánar í tölurnar komi í ljós að neysla á hvern ferðamann hækki úr ærri 76.600 krónum í nærri 81 þúsund krónur, eða um nærri 6 prósent á milli ára. Þegar horft sé sjö ár aftur í tímann hafi neyslan hins vegar aukist um 20 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×