Innlent

Umferðaróhapp við Gullinbrú

Bifhjólamaður missti stjórn á hjóli sínu við Gullinbrú í Grafarvogi laust fyrir klukkan átta í morgun með þeim afleiðingum að hann lenti í götunni. Maðurinn viðbeinsbrotnaði og var fluttur á slysadeild að sögn lögreglu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn á þrítugsaldri. Ekki liggur fyrir hvað olli því að hann missti stjórn á hjóli sínu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×