Innlent

Sautján ára ákærð fyrir að ráðast á fimmtán ára

Sautján ára stúlka hefur verið ákærð fyrir að ráðast á 15 ára stúlku við Bónusvideó í Hólagarði í fyrravor. Ákæra á hendur henni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Sú eldri á að hafa slegið þá yngri ítrekað í andlitið þannig að hún hlaut mar á milli augna, eymsli á nefi og kinnbeinum beggja vegna nefs, eymsli í hálsvöðvum og snúning um hálsliði. Þá gera foreldar yngri stúlkunnar kröfu um bætur á hendur eldri stúlkunni vegna árásarinnar upp á 250 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×