Veiða má rjúpu í mánuð, hámark 38.000 fugla 12. september 2007 15:27
Umhverfisráðherra hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir m.a að rjúpum fækkar nú annað árið í röð frá síðasta uppsveifluskeiði, en það stóð aðeins yfir í tvö ár samanborið við fjögur til fimm ár í fyrri uppsveiflum rjúpnastofnsins. Að mati Náttúrufræðistofnunar er áætlaður varpstofn 2007 um 110.000 fuglar og er það fækkun um 70.000 fugla frá því í fyrra. Við mat á veiðiþoli er miðað við að hlutföll unga í veiðistofni verði 79% það sama og talningar sýndu síðsumars 2007. Stærð veiðistofns 2007 er metin um 440.000 fuglar og með því mælt að ekki verði veiddir fleiri en 38.000 fuglar í ár. Miðað við fyrri reynslu af rjúpnastofninum í niðursveiflum, mun rjúpum fækka næstu þrjú til fjögur árin og veiðiþol stofnsins minnka að sama skapi. Það er því ljóst að takmarka þarf rjúpnaveiði enn frekar í ár en gert hefur verið á síðustu árum. Sigmar B. Hauksson formaður Skotveiðifélags Íslands segir að ekki sé nema gott eitt um þessa ákvörðun að segja. "Við erum að vísu óánægðir með að stöðugt skuli verið að breyta dagsetningum á veiðitímabilinu," segir Sigmar í samtali við Vísi. "Við höfum því lagt til að þessi dagsetning nú gildi fyrir næstu þrjú árin."
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Samstöðin loki mögulega í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Fleiri fréttir Samstöðin loki mögulega í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Sjá meira