Innlent

184 sektaðir fyrir hraðakstur á Digranesvegi

MYND/Guðmundur

184 ökumenn eiga von á sektum eftir að hafa verið myndaðir við hraðakstur á Digranesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópavogi en þar er 30 kílómetra hámarkshraði.

Á tveimur klukkustundum um miðjan dagfóru 288 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða eins og lögregla kallar það. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 kílómetrar á klukkustund en sá sem hraðast ók var mældur á 60 kílómetra hraða.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að hún hafi gripið til eftirlits á Digranesi eftir ábendingar frá íbúum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×