Innlent

Mótvægisaðgerðir kynntar í dag

MYND/Róbert

Fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu klukkan fjögur í dag.

Þar verða kynntar tillögur ríkisstjórnarinnar að mótvægisaðgerum vegna niðurskurðar þorskkvóta. Eins og greint hefur verið frá var þorskkvótinn skertur um þriðjung á nýhöfnu fiskveiðiári miðað við fyrra fiskveiðiári. Boðuðu stjórnvöld í framhaldinu mótvægisaðgerðir til þess að aðstoða byggðir landsins við að takast á við niðurskurðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×