Björgvin segir ónafngreinda sjálfstæðismenn vera bleyður 12. september 2007 13:24
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra finnst ekki mikill mannabragur á þeim ónafngreindu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem gagnrýndu hann í Viðskiptablaðinu í gær fyrir ákafa í að koma evru- og Evrópumálum á dagskrá. „En broslegt er það nú í besta falli að kapparnir skuli ekki geta verið menn til að tala undir nafni," segir Björgvin í nýrri færslu á heimasíðu sinni. „Síðustu vikur hefur umræðan um Evrópumálin verið með fjörugasta móti. Sem er afar jákvætt enda um eitt stærsta hagsmunamál okkar Íslendinga að ræða," segir Björgvin. „Því var nokkuð kúnstugt að rekast á það í ágætri grein í Viðskiptablaðinu í dag að þar fjargviðrast einhverjir "ónafngreindir" þingmenn Sjálfstæðisflokksins yfir því að ég tali nokkuð tæpitungulaust fyrir því að þessi mál verði tekin af fullri festu á dagskrá." Ennfremur segir Björgvin að við blasi að ekki hugnast þetta öllum í nefndum flokki, enda ekki ætlun hans að fara með veggjum til þess eins að styggja nú ekki viðkvæma í einstökum málum. "En broslegt er það nú í besta falli að kapparnir skuli ekki geta verið menn til að tala undir nafni. Það undrar mig mjög. Sérstaklega þar sem nokkuð glöggt má geta sér til um viðmælendur út frá orðfæri og aðkomu að málinu," segir Björgvin og endar færsluna á eftirfarandi setningu: "Já, lítið leggst fyrir kappana í þessu máli altént."
Mest lesið Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Fleiri fréttir 13,3 milljónir frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Sjá meira