Frú Vigdís Finnbogadóttir gisti alltaf á D´Angleterre 12. september 2007 12:53 Frú Vigdís Finnbogadóttir gisti ætíð á D´Angleterre þegar hún var í Kaupmannahöfn hér á árum áður.
Hotel D´Angleterre sem nú er komið í eigu Íslendinga er eitt þekktasta hótel Norðurlandanna og iðjulega gististaður þeirra þjóðhöfðingja sem koma í heimsókn til Kaupmannahafnar. Þegar frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands kom til borgarinnar hér á árum áður gisti hún ávallt á D' Angleterre. Auk þeirra hafa nær allir frægustu kvikmyndaleikarar og tónlistamenn heims gist hótelið ef þeir hafa verið í borginni. Hotel D´Angleterre var byggt fyrir 250 árum. Allt frá því um þarsíðustu aldamót hefur það skipað ákveðinn sess meðal efnaðri Íslendinga í Kaupmannahöfn en þeir notuðu hótelið óspart upp úr 1900 sem samkomustað sinn. Annar þekktur Íslendingur sem snemma tók ástfóstri við D´Angleterre var nóbelskáldið Halldór Laxness. Gisti hann þar iðulega ef hann átti leið um Kaupmannahöfn. Hótelið komst verulega í fréttirnar í forsetatíð frú Vigdísar á níunda áratugnum þegar frægur "kryddsíldarfundur" hennar og Margrétar Danadrottningar var haldinn í ráðstefnusal hótelsins. Kryddsíldarnafnið á fundinum kom í kjölfar þess að blaðamaður Morgunblaðsins þýddi danska orðið krydsild á þennan hátt en meiningin var að þær Vigdís og Margrét myndu svara spurningum fréttamanna opinskátt og af hreinskilni. Og hér í lokin er ein skemmtisaga af dvöl hljómsveitarinnar The Rolling Stones á D' Angleterre árið 1999 er þeir héldu rómaða tónleika sína það árið á Parken. Daginn sem hljómsveitin kom á hótelið var verið að vinna á fullu við byggingu Metro-stöðvarinnar við Kongens Nytorv en hún liggur við hlið hótelsins. Aðstoðarhótelstjórinn kom að máli við verkstjórann yfir borgenginu á byggingarstaðnum og bað hann um að halda hávaðanum í aðalborvélinni í lágmarki til hádegis daginn eftir því Mick Jagger og félagar myndu sennilega sofa frammeftir þann daginn. Verkstjórinn kom þessum skilaboðum áleiðis til Skotans Eddie McAllister sem stjórnaði stærstu vélinni af gerðinni Casagrande 6. Eddie svaraði honum fáu en strax klukkan sjö morguninn eftir var Eddie búinn að auka loftþrýstiginn á vélinni og setja "hamarinn" á fullt þannig að nær ólíft var fyrir hávaða á vinnusvæðinu framundir hádegið. "Ég læt ekki neina helvítis drykkjusjúklinga og dópista segja mér fyrir verkum," sagði Eddie með sínum kjarngóða Edinborgarhreim og glotti við tönn.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira