Staðfesti úrskurð Samkeppniseftirlitsins vegna Icelandair og Bláfugls 12. september 2007 11:48 MYND/Vilhelm
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli á hendur Icelandair Group og Bláfugli vegna samruna félaganna. Samkeppniseftirlitið ákvað í sumar að breyta skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs vegna samruna FL Group, Bláfugls og og Flugflutninga árið 2005. Með skilyrðunum samkeppnisráðs átti að tryggja að Bláfugl og Flugflutningar störfuðu að öllu leyti sjálfstætt áfram eftir samrunann og að hann raskaði ekki samkeppni. Jafnframt var tekið fram í ákvörðunarorðum samkeppnisráðs að tekin yrði afstaða til þess í síðasta lagi 1. júlí í ár hvort breyttar aðstæður á markaði fyrir flugflutninga til og frá landinu gæfu tilefni til endurskoðunar á skilyrðunum. Samkeppniseftirlitið óskaði eftir gögnum frá Bláfugli, Flugflutningum, Icelandair Group og Icelandair Cargo í sumar en taldi þeim verulega áfátt þegar þau bárust. Vegna tafa á afgreiðslu málsins tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun í málinu þann 28. júní um að Bláfugl og Flugflutningar yrðu fram til 1. október að kaupa flugafgreiðslu og aðra tengda þjónustu af öðrum en Flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli. Samkeppniseftirlitið myndi í síðasta lagi 1. október taka afstöðu til þess á ný hvort aðstæður á flugflutningamarkaði hefðu breyst og gæfu tilefni til endurskoðunar á skilyrðum samkeppnisráðs frá árinu 2005. Deilt var um það fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála hvort Samkeppniseftirlitið hefði haft heimild til að framlengja íhlutun í samruna félaganna með þessum hætti. Komst áfrýjunarnefndin að því að félögin sem áfrýjuðu, Icelandair og Bláfugl, bæru að hluta ábyrgð á því að endurskoðun á ákvörðun samkeppnisráðs dróst fram yfir 1. júlí. Hinn nýi frestur, 1. október, væri auk þess eðlilegur með hliðsjón af umfangi málsins. Ákvað áfrýjunarnefnd því að staðfesta úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá því í sumar.
Mest lesið Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Fleiri fréttir Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Sjá meira