Fasteignakaupendur vilja Íbúðalánasjóð í óbreyttri mynd 10. september 2007 18:10 Spurning hvort að Íbúðalánasjóður muni einhvern tímann lána fyrir kaup á piparkökuhúsum Mynd/ Pjetur
Mikill meirihluti fasteignakaupenda vill að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í júní og júlí. Tæplega 83% eru þessarar skoðunar samkvæmt könnuninni. Ámóta margir og í sambærilegri könnun í lok síðasta árs. Rúm 9% telja að sjóðurinn eigi að vera heildsala og einungis 8,4% vilja að Íbúðalánasjóður hætti starfsemi og viðskiptabankarnir sjái alveg um íbúðalán, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Íbúðarlánasjóði. Fleiri en 8 af hverjum 10 hafa talið að Íbúðalánasjóður ætti að starfa í óbreyttri mynd í sambærilegum könnunum sem Capacent Gallup hefur gert fyrir sjóðinn síðastliðið eitt og hálft ár. Nærri þrír af hverjum fjórum fasteignakaupendum eru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði og aðeins 7% eru mjög eða frekar neikvæðir gagnvart sjóðnum. Fimmtungur er hvorki jákvæður né neikvæður. Þegar spurt var hver ætti að sjá um veðtryggð húsnæðislán svöruðu tæplega 40% Íbúðalánasjóður og rúmlega 40% bæði Íbúðalánasjóður og bankarnir. Tæplega 20% vildu fela viðskiptabönkunum einum að sjá um slík lán. Hringt var í 1600 einstaklinga sem keyptu fasteign í febrúar til júní. Endanlegt úrtak var 1.469. Svarhlutfall var 56,4%.
Mest lesið Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Erlent Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Innlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Innlent Líf bar sigur úr býtum Innlent Tvær handtökur í nótt Innlent Fleiri fréttir Tvær handtökur í nótt Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Sjá meira