Sýknaðir af ákæru um íkveikju á Stokkseyri 7. september 2007 15:07 MYND/Heiða
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag tvo menn af ákæru um að hafa lagt á ráðin um að kveikja í verslunarhúsi á Stokkseyri. Segir dómurinn að þrátt fyrir að frásögn mannanna sé með ólíkindablæ sé ekki hægt að útiloka að aðrir hafi verið þar að verki. Forsaga málsins var sú að maður hafði samband við lögreglu í byrjun janúar 2004 og sagði að til stæði að kveikja í húsinu. Sagði hann að eigandi hússins, annar ákærðu, gæti ekki staðið í skilum með afborganir vegna hússins og að hann hefði áform um að svíkja fé út úr tryggingum. Sagði maðurinn að hinn sem ákærður var hefði ætlað að kveikja í húsinu og að það væri búið að koma fyrir eldfimu efni í húsinu. Lögregla kannaði húsið og í ljós kom að það var opið hverjum sem er en innandyra fannst mikið af pappakössum sem virtust innihalda plast, steinull og tréfjalir, og í stórum sal fannst álbrúsi með nokkru magni af olíu. Lögregla hleraði síma mannnanna Lögregla fékk heimild til að hlera símtöl mannanna og út frá því var lögregla á vakt við húsið í lok janúar þegar annar mannanna kom að í bíl og fór inn í húsið. Hann var handtekinn eftir að hann kom út og töldu lögreglumenn sig finna olíulykt af honum. Fundu þeir þá reykjarlykt og hlupu inn í húsið þar sem kveikt var á tveimur kertum og olía á kössum og gólfi. Slökktu lögreglumenn á kertunum. Fram kom fyrir dómi að þegar símtöl mannanna hefðu verið hleruð hefði annar mannanna sagst vera í djúpum skít vegna þess að bankarnir ættu veð í húsinu. Enn fremur væri hann í vanskilum. Þá kom fram í öðru símtali mannanna að annar þeirra, sá sem keypt hafði húsið, hefði sagt að hann reiknaði með „að þetta skeði í kvöld". Þá hefði hinn sagt á móti: „ég launa þér þetta rosalega vel". Lögregla kannaði ekki aðstæður í húsinu Mennirnir könnuðust við að hafa átt þessi samtöl í síma en sögðu þau alls ekki hafa tengst áformum um að kveikja í húsinu. Samtalið hefði snúist um vanskil annars við hinn vegna kaupa hins fyrrnefnda á húsnæðinu. Sagðist sá sem gripinn var hafa séð kertin logandi í húsinu og ummerki um að einhver hefði verið þar áður. Hann hefði ekki slökkt á kertunum þar sem hann hefði ekki talið hættu á eldsvoða enda væri að slokkna á þeim. Dómurinn komst að því að framburður mannanna hefði verið með nokkrum ólíkindablæ, sérstaklega frásögn annars þeirra að hann hefði ekki talið þörf á að slökkva á kertunum. Þá bendi samtöl mannanna óneitanlega til þess að þeir hafi verið að ráðgera íkveikju. Hins vegar hafi lögreglan ekki kannað aðstæður í húsnæðinu áður en hún fór að vakta húsið umrætt kvöld en ljóst væri að unglingar hefðu stundum sótt í húsið. Taldi dómurinn því ekki loku fyrir það skotið að aðrir en ákærðu ættu hlut að máli. Gegn eindreginni neitun mannanna væri því ekki komin fram lögfull sönnun fyrir sekt ákærðu í málinu.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira