Vinnumálastofnun með allt niður um sig 7. september 2007 09:26 MYND/Vilhelm
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafniðnaðarsamband Íslands, sakar Vinnumálastofnun um að vera með allt niður um sig og að senda aumkunarverð skilaboð til fyrirtækja um að það sé í lagi að brjóta alla samninga á launamönnum. Tilefni yfirlýsingar Guðmundar eru þau tíðindi að Vinnumálastofnun veitti undirverktökum Arnarfells á Kárahnjúkum frest í gær til þess að koma sínum málum í lag en í ljós kom ekki voru allir starfsmenn verktanna skráðir rétt. Guðmundur bendir á að á undanförnum árum hafi trúnaðarmenn launamanna og starfsmenn stéttarfélaga ítrekað kvartað undan því að fyrirtæki brjóta lög og kjarasamninga. Hins vegar hafi opinberar eftirlitsstofanir brugðist seint eða jafnvel alls ekki við. „Ítrekað hefur komið fyrir þegar fyrirtæki á Kárahnjúkasvæðinu hafa ekki uppfyllt reglugerðir um aðbúnað og kannski fengið á sig dagsektir eftir langt þref trúnaðarmanna starfsmanna, þá hafa þær ætíð verið felldar niður," segir í yfirlýsingunni Guðmundar. Hafi fengið símtöl frá mikilsmetandi mönnum Þá er bent á að undanfarnar vikur hafi trúnaðarmenn starfsmanna ítrekað krafist þess að fá upplýsingar um kjör starfsmanna undirverktaka Arnarfells. Fyrirtækin hafi virt þær beiðnir að vettugi. „Þrátt fyrir kvartanir og kröfur um viðbrögð snéri Vinnumálastofnun ætíð bakinu í viðmælendur, svo kom eftir 6 vikur að Vinnumálastofnun gat ekki annað en tekið upp síman og svarað. Upphófst venjubundinn fyrirsláttur við starfsmenn stéttartfélaganna og undanlátssemi gagnvart fyrirtækjunum. Vinnumálastofnun varð sér ítrekað til minnkunar og athlægi, sendi lögregluna á stað og greinilega fengu starfsmenn Vinnumálastofnunar einhver harðorð símtöl frá mikilsmetandi mönnum þannig að rokið var til og lögreglan kölluð tilbaka," segir í yfirlýsingu Guðmundar. Svo hafi ASÍ sent frá sér mjög harðorða ályktun og menn hafi farið að undirbúa vinnustöðvun en þá hafi forstjóri Vinnumálastofnunar sest að samningum við Arnarfell. Guðmundur spyr hvað um hafi verið að semja og sakar Vinnumálastofnun um að snúast gegn launamönnum.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira