Lögregla hafði afskipti af tugum utanbæjarbarna á Ljósanótt 5. september 2007 14:16 Þessi hressu ungmenni skemmtu sér á Ljósanótt á sérstökum unglingatónleikum á föstudagskvöldinu. MYND/Víkurfréttir
Á Ljósanótt síðastliðinn laugardag þurfti lögreglan í Reykjanesbæ að hafa afskipti af 60 börnum sem annað hvort voru ölvuð eða höfðu gerst brotleg við reglur um útivistartíma. Helmingur barnanna var frá sveitarfélögum utan Suðurnesja. Flest börnin voru færð í sérstakt athvarf sem starfrækt var í bænum og þurftu sumir að bíða lengi eftir foreldrum sínum enda um langan veg að fara. Skúli Jónsson hjá lögreglu Reykjanesbæjar segir að lögregla hafi farið með 55 börn í athvarfið sem starfrækt var í samstarfi við útideild, barnaverndarnefnd og foreldrafélög í bænum. Þá hafi fimm einstaklingar sem ekki hafi náð 18 ára aldri verið vistaðir á lögreglustöð bæjarins sökum ástands þeirra. Af þeim 55 sem flutt voru í athvarfið voru 43 þar vegna ölvunar en 12 vegna útivistarbrota. 29 þeirra voru búsett utan Suðurnesja. Skúli segir að börnin hafi verið sótt af forráðamönnum sínum og hafi sum þeirra þurft að dvelja þar í dágóða stund sökum þess að foreldrar þurftu að fara um langan veg til að sækja þau. Eitt barnið endaði kvöldið í neyðarvistun á meðferðarheimilinu Stuðlum. Börnin voru að sögn Skúla frá Reykjavík og úr fleiri bæjum á höfuðborgarsvæðinu. Hann segist ekki hafa skýringu á því hvers vegna svo mörg utanbæjarbörn hafi verið á svæðinu. Lögreglan hafi hins vegar verið með strangt eftirlit í bænum vegna hátíðarhaldanna og kannski hafi utanbæjarbörnin haldið að þau væru að fara á einhverskonar útihátíð. Skúli tekur fram að börnin hafi upp til hópa verið mjög kurteis í öllum samskiptum við lögregluna.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur í verkefni út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira