Innlent

Eldur í parhúsi í Breiðholti

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eld í parhúsi í Breiðholti laust eftir klukkan fimm í dag. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið bar að garði.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var ekki um mikinn eld að ræða. Íbúi í húsinu hafði sjálfur náð að slökkva eldinn. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast í eldinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×