Vilja kæra þýskt-pólskt fyrirtæki fyrir ólögmæta starfsemi 3. september 2007 23:51 Hópur manna sem slasaðist var ekki skráður löglega hér á landi. MYND/GG
Óhjákvæmilegt er að þýsk-pólska þjónustufyrirtækið Hunnenbeck verði kært fyrir ólögmæta starfsemi hér á landi að mati Starfsgreinasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. Gerðar eru alvarlegar ahugasemdir við samvinnu GT verktaka við fyrirtækið og því haldið fram að hér á landi séu starfandi fjöldi manns án dvalarleyfis og utan við skattar og skyldur. Í yfirlýsingu Starfsgreinasambands Íslands kemur fram að hið þýsk-pólska fyrirtæki Hunnenbeck vinni í samstarfi við starfsmannaleiguna Nordic Construction Line sem sé skráð í Lettlandi. Það fyrirtæki sjái GT verktökum fyrir ódýru vinnuafli. Ennfremur segir að Hunnenbeck hafi verið með starfsemi hér á landi síðan í síðastliðnum júnímánuði án þess að hafa verið skráð og því hafi starfsemi þess verið ólögmæt. Fram kemur í yfirlýsingunni að Marteinn Másson, lögmaður Hunnenbeck á Íslandi, hafi skráð fyrirtækið fyrst í dag. Sambandið dregur ennfremur í efa að Hunnenbeck geti sýnt fram á að það hafi staðið við kjarasamninga hér á landi og að starfsmenn á þess vegum séu tryggðir á Evrópska efnahagssvæðinu. Að mati sambandsins er óhjákvæmilegt að fyrirtækið verði kært fyrir ólögmæta starfsemi. Yfirlýsing sambandsins kemur í kjölfar rútuslyss sem átti sér stað í Besstaðabrekku í síðustu viku. Um borð í rútunni var hópur erlendra verkamanna sem reyndist ólöglegur hér á landi. Að mati sambandsins virðist lítið samráð vera meðal stjórnvalda í málefnum útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Sambandið telur allar líkur benda til þess að hér á landi séu starfandi fjöldi manns án dvalarleyfis og utan við skattar og skyldur. Þá kemur einnig fram í yfirlýsingunni að yfirtrúnaðarmaður sambandsins á Kárahnjúkasvæðinu hafi vakið athygli Vinnumálastofnunar á meintri ólögmætri starfsemi GT verktaka.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira